Hagfræðistofnun Háskóla Íslands er vísindaleg rannsóknastofnun sem starfrækt er af Háskóla Íslands. Stofnunin heyrir undir Hagfræðideild á Félagsvísindasviði og er vettvangur rannsókna- og þróunarstarfs í hagfræði og skyldum greinum.
Hlutverk Hagfræðistofnunar er:
- að afla þekkingar á hagkerfi og þjóðarbúskap Íslendinga,
- að efla tengsl rannsókna og kennslu og samhæfa rannsóknir í hagfræði sem unnið er að við Háskóla Íslands,
- að styðja kennslu og þjálfun í vísindalegum vinnubrögðum og veita nemendum í framhaldsnámi aðstöðu og búnað til rannsóknarstarfa eftir því sem kostur er,
- að stuðla að tengslum háskólans við atvinnu- og þjóðlíf og innlent og erlent vísindasamfélag,
- að sinna þjónustuverkefnum og ráðgjöf í hagfræði og skyldum greinum,
- að annast útgáfu og aðra kynningu á niðurstöðum hagfræðirannsókna,
- að gangast fyrir ráðstefnum, fyrirlestrum, námskeiðum, endurmenntun og hvers kyns annarri starfsemi, sem er til þess fallin að útbreiða hagfræðilega þekkingu.